Thursday, October 30, 2008

Það eru að koma jól...

niii, djók! það verður ekki fyrr en eftir tvo mánuði múhahahah ;D en það er samt að koma föstudagur, eftir klukkutíma og tíu mínútur svo ég sé nú nákvæm :P

Nákvæmlega EKKERT merkilegt að gerast í lífi mínu þessa daganna...
Eftirfarandi er ég búin að gera síðan ég bloggaði seinast:

Fór í skólann og gerði verkefni.
Verkefnið var víst ekki nógu gott! URR á helvítis kerlingarugluna!
Fór í vinnuna...
Gunni fór í fílu..
Fór í vinnuna á laugardaginn... Pleisið var dautt í fjóra tíma!
Var heima hjá mér um kvöldið og sofnaði snemma fyrir framan sjónvarpið... kl 23!
Svaf út daginn eftir.. Lá síðan í leti allann daginn fyrir utan það að ég fór í sorpu og í hagkaup að kaupa mér sokkarbuxur og rófu... Hagkaup reyndi að ræna af mér 400 kr. Ég lét þá sko ekki komast upp með það! Ónei!
Var í fimm tíma á sunnudagskvöldið að búa til fyrirlestur fyrir markvissa tölvunotkun fyrir mánudaginn.
Skóli á mánudaginn... Var sú eina í mínum hóp sem mætti í VMM þannig að ég fékk það skemmtilega hlutverk að skrifa upp storyboard! Jibbý! NOT.
Það var enginn fyrirlestur fluttur í markvissri tölvunotkun á mánudaginn! Mikið er ég fegin að ég eyddi öllum þessum tíma í hann á sunnudaginn!
Þriðjudagur, tími hjá uglunni.. ég gerði ekki neitt!
Fór í heimsókn upp í Breidd að ath með pening fyrir bústaðnum...
Miðvikudagur byrjaði með mígreni. YESS! Meikaði því ekki fyrsta tíma, meikaði varla næsta tíma (markvissa tölvunotkun) en mætti samt og fór síðan að sækja Lilju skvís á leikskólann.
Fór síðan á kaffi parís um kvöldið að "læra" með Aníku.. Hún var voða dugleg... ég var minna dugleg en náði svosem að gera það sem ég gat gert...
Veikindi í dag, var heima, eins gott að ég hafi ekki misst af neinu skemmtilegu (douptful)..
Lærði, horfði á Grey´s anatomy og lék mér í photoshop.

Jebb, þetta er líf mitt þessa daganna.. Þvílíkt stuð!

Lag dagsins (og vikunnar reyndar): Kyssi tímaglasið með Hraun af plötunni I can´t belive it´s not happiness...

Maður dagsins: Lena fyrir að senda mér myndir í dag til þess að leika mér að á meðan mér leiddist...

Pæling dagsins: Af hverju nenni ég engu þessa daganna??http://7art-screensavers.com/screens/happy-halloween/halloween-eve.jpg

Tuesday, October 21, 2008

I wanna dance with somebody

Halló halló halló

Loksins kominn þriðjudagur og talning er að baki. Vil taka það fram að til viðbótar við Selfoss, Akranes og Keflavík í gær, þá voru leigurnar á Granda og í Garðabænum teknar líka! OG við fórum yfir talningarlistana í lok dags! Dugnaður takk fyrir! enda var ég DAUÐ þegar ég komst loksins heim!

Fékk út úr miðannarmatinu mínu um helgina... drumroal please..... A í öllu! :P thank thank you, I am a genius, I know ;)

Tónleikarnir á laugardaginn voru frábærir! Þakka Hraun liðum og sérstaklega honum Svavari fyrir frábæra skemmtun, auk þess sem að ég þakka Bjössa úr Múgsefjun fyrir dansinn og Aníku og Arthúri sérstaklega fyrir companíið ;) Hitti auðvitað fleiri þetta kvöld, þar á meðal Hrebbnu, Bigga og Helgu Kristínu, það var gaman að sjá ykkur öll ;) þakka Helgu sérstaklega fyrir spjallið, það var ekki leiðinlegt ;P og Arthúri fyrir knúsið fyrir utan Rósenberg, I really needed that ;* og auðvitað henni Skottu minni fyrir að nenna að keyra mig semi ölvaða heim að kvöldi loknu ;*

Er annars bara á leiðinni á Kaffi París yet again að hitta hana Lenus og Huldu mína :) og á eftir að jömpa eldfljótt í sturtuna fyrst ;) þannig að I´m keeping this short ;) langaði bara að deila lagi dagsins með ykkur...

Lag dagsins: http://www.youtube.com/watch?v=bYvZ8QiT7YA
SKYLDA AÐ HORFA!!!!

Maður dagsins: Pabbi sem setti hita á ofninn minn í gærkveldi :D fraus ekki úr kulda í nótt takk fyrir!

Pæling dagsins: Af hverju á ég engan pening til þess að skreppa til Ítalíu og heimsækja allar frábæru vinkonurnar mínar sem nú búa þar? Og af hverju bý ég ekki þar með þeim!?!?!?

Friday, October 17, 2008

Brátt kemur ekki betri tíð, því að betri getur tíðin ekki orðið..

Kæru vinir og vandamenn og aðrir rugludallar

Það er kominn föstudagur.

Er komin í vetrarfrí, ef vetrarfrí mætti kalla það er að segja.. byrjaði daginn í flugvél á leið austur á Egilsstaði, þar sem við mér tók hann Jón Grétar úr Byko á Reyðarfirði.. Talning!
Kláraði talninguna af á u.þ.b. 40 mínútum, já, það er ÞAÐ mikið af tækjum þar eða hitt þó og eyddi það sem eftir var að deginum í bíltúr um austurland á meðan ég beið eftir fluginu mínu heim, sem var ekki fyrr en hálf 6! Anywhoos, það var svosem ágætsbíltúr :P

Fer norður og niður í fyrramálið að telja í Byko Akureyri, hitti þar hann Jóa litla frænda ;) Kem heim aftur um sexleitið og mæti beint í Mamma Mia singalong hjá Lindu frænku og svo er það bara Rósenberg um tíuleitið á off venue tónleikana með Hraun! :D

Sunnudagurinn fær að fara í hvíld og heimalærdóm, enda á maður víst að nota svona vetrarfrí í svoleiðis rugl skilst mér..
Mánudagur: Selfoss, Akranes, Keflavík. Boring, boring, boring.

Er af einhverjum ástæðum að horfa á Singing bee í sjónvarpinu :/ Don´t know why! En hef hinsvegar komist að því að íslendingar eru ekkert sérlega flinkir í íslenskum dægurlögum og að Evróvísíón lagið með Eurobandinu festist svo sannarlega ekki í heilanum á fólki, að minnsta kosti ekki réttur teksti.. Skiljanlega svosem, þar sem ekki skilst annað hvert orð sem sungið er í laginu....

Bústaðaferðin um seinustu helgi var hinsvegar awesome :D ég og aníka mættum á svæðið um hálftíu leitið eftir smá leit af bústaðnum. Kveiktum ljós, hituðum ofna, völdum okkur herbergi og komum okkur fyrir fyrir framan sjónvarpið og byrjuðum að horfa á mjööög svo sérkennilega bíómynd um Bigfoot og konuna hans eftir að þau "rændu" einhverjum krakka.. Já, skemmst frá því að segja að þegar næstu gestir komu, sem voru einhverjar vinkonur hennar Lenu, þá héldu þær að við værum orðnar geðveikar og fóru frekar að tala um hvað hann Roger Thorpe væri að gera af sér þessa vikuna í Guiding light. Auðvitað fór yours truly að taka þátt í þeim umræðum, nema hvað :P næstu gestir fylgdu í kjölfarið og drykkjan byrjaði..
verður reyndar að viðurkennast að ég sofnaði fljótlega eftir það en vaknaði auðvitað það seinna um nóttina að hann Emmi elskan var mættur á svæðið og þá stóð ekki annað til boða enn að fara fram og halda áfram drykkjunni og spjalla við fólkið :P Vorum að til kl sjö um morguninn en þá voru allir búnir á því eftir langa nótt. Það tók reyndar smá tíma að koma Emma í ró en mér skilst að það hafi tekist á endanum ;P
Vaknaði svo upp við vondan draum um tíuleitið þegar hann Þeysi fór að ganga í svefni (að ég held) og birtist óvænt uppí rúminun hjá okkur Aníku, eftir að hafa ekki hitt á klósettið nokkrum mínútum fyrr :/ ég tók það hinsvegar ekki í mál að hafa þennan óvænta gest í rúminu mínu og var hann rekinn upp á svefnloft hið snarasta! En gert var gert og fólkið fór að tínast á fætur, enda þurftu nokkrir að mæta í vinnuna um morguninn :P
Eftir að húsið fór að tæmast fórum við Aníka í það að þrífa eftir nóttina, ég tók klósettið (sem var hreint út sagt EKKI hreint!) og aníka tók rest (ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að taka af henni ryksuguna :/). Á meðan á þessum ósköpum stóð lá Lena dauð inní rúminu okkar Aníku því að einhver (nefni engin nöfn) ákvað að gefa henni 1200 mg af íbúfeni ofaní allt áfengið sem hún var búin að drekka :/ þannig að Lena greyið vaknaði ekki fyrr en hálf fimm :P
Stákarnir (Emmi og Þeysi) sem höfðu "yfirgefið" (verið reknir út) bústaðinn fyrr um daginn, komu aftur um hálf átta leitið og byrjuðu hið snarasta að elda ofan í okkur dömurnar á meðan Lena og Aníka skelltu sér á Borgarnes að kaupa það sem drengirnir höfðu gleymt að kaupa :P
Fleiri fylltu húsið er leið á kvöldið og við tók spjall, drykkja og að lokum sing star, þar sem yours truly kicked ass! ;)
Þegar singstar eigandinn fór aftur í bæinn tók við Partý og co þar sem ég var með Aníku og Emma í liði og Lena og Þeysi voru saman.. Tja, hvað get ég sagt um það spil?? Annað en það að Emmi dó, Aníka dó og það er rosalega erfitt að vera einn í liði í partý og co :/ en ég vann samt :P true story!
Vöknuðum um hádegi næsta dag við það að Aníka var farin að laga til. Þannig að þá var ekki annað í stöðunni en að fara á fætur og hjálpa til við fráganginn :P
Ágætishelgi fyrir utan laugardagsmorguninn, hefði alveg verið til í að sofa lengur :/
Myndir verða að fá að koma inn seinna því að Lena var sú eina sem tók myndir og ég er ekki búin að fá að sjá þær :/
en meira var það ekki í bili :P

Lag dagsins: Heaven með All saints.. datt af einhverjum ástæðum inná gamlan disk í itunes :P

Maður dagsins: Jón Grétar fyrir magnaðan bíltúr í dag :P

Pæling dagsins: Hve margir myndu sakna mín ef ég myndi hætta í skólanum og flytja til Eskifjarðar? Það er vídeóleiga þar, búin að tékka!

P.s. Öll svörin í skoðanakönnuninni voru rétt ;)

Wednesday, October 8, 2008

Þriðjudagur.. nei bíddu nú við, það er kominn miðvikudagur!

Já, kæru lesendur, það er komin miðvikudagur

Helgin nálgast hratt og með henni fullt af skemmtilegu fólki sem ætlar að njóta lífsins aðeins áður en kreppan skellur á af fullum þunga! Það verður dansað og sungið og drukkið og hlegið og haft gaman af lífinu aðeins, enda engin ástæða til annars, vel flestir Byko menn sem verða á staðnum og við erum enn sem komið er nokkuð örugg með vinnu.. held ég.

Nú er allt á fullu í skólanum, miðannarmat í fullum gangi og verkefnaskil út um allt! Ég sem er auðvitað orðin svo hrikalega samviskusöm allt í einu er auðvitað löngu búin að skila af mér öllum mínum verkefnum... Fékk btw fleiri tíur í gær ;) bara svona koma því á framfæri :P Er svo að hugsa um að reyna að koma mér að í þessu blessaða myrkraherbergi sem mér skilst að leynist einhversstaðar í Vörðuskóla, filmurnar eru farnar að safna ryki uppí hillu hjá mér þar sem ég tími ekki að fara með þær í framköllun (enda ógeðslega fáránlega fokking dýrt!), enda óþarfi ef maður kemst einhversstaðar að til þess að gera þetta sjálfur!

Búin að missa nokkra tíma í leigunni þar sem sú ákvörðun var tekin í fyrradag að hafa lokað á sunnudögum í vetur.. Það er einhver 16 þúsund kall ca á mánuði sem ég missi í tekjur þar, ekki nema 2 bensíntankar! Þannig að ég er farin að leita eftir smá aukavinnu með leigunni og skólanum og félagslífnu og tónleikunum og jamm, sp hvort ég hafi yfirhöfuð tíma til þess að lifa... Við sjáum til með það..

Jæja, hef svosem ekkert mikið meira að segja í bili, gæti rausað yfir vinstri pakkinu sem er með mér í skólanum og ruglinu sem er verið að ljúga upp í það (sem það trúir!) en ég er svo svöng að ég hef ekki orku í það akkúrat núna :/ þannig að ég segi bara lifið heil og vonandi verðum við öll hérna ennþá á morgun.

Lag dagsins: Redemtion City með Corrosion of Conformity

Maður dagsins: Pabbi minn, bara að því að hann er hann sjálfur og lætur engan komast upp með það að vaða yfir sig! You go dad!

Pæling dagsins: Hvert förum við þegar við deyjum?

Monday, October 6, 2008

just another manic monday... I wish it was sunday ohhohh

Helst í fréttum er eftirfarandi:

Geir H. Haarde var ekki tekin fyrir ölvunarakstur í gærkveldi, það var allt saman misskilningur. Samkvæmt heimildum var ráðherran að koma af sjávarútvegssýningu í Smáranum þegar lögreglan stöðvaði hann í reglubundnu eftirliti á ráðherrabílnum. Bílstjóri Geirs var hvergi sjáanlegur en fregnir herma að hann liggi með alvarlega áverka á slysó eftir líkamsárás. Ekki hefur náðst í skottið á árásarmanninum en talið er að hann sé fjórfætlingur, ef til vill tófa eða geit.

Annað.. Sviss hefur lokað landamærum sínum og samkvæmt tilkynningu frá ríkisstjórninni nú fyrir stundu stendur ekki til að opna þau aftur fyrr en efnahagsástandið í heiminum batnar. Gunther Weiss, talsmaður forseta Sviss, sagði í samtali við CNN fyrr í morgun að ástæða lokunarinnar væri sú að ríkisstjórninni hefði borist til eyrna að fjöldi íslendinga væru farnir að plana flutninga til landsins í ljósi atburða seinustu vikna. Hefðu svisslendingar einfaldlega ekkert pláss fyrir allt þetta fólk og því var gripið til þessara aðgerða. Ekki náðist í forsætisráðherra Íslands við vinnslu þessarar fréttar þar sem hann var á fundi með Ríkislögreglustjóra.

Airwaves er á næsta leiti og heyrst hefur að enginn annar en Bono sjálfur og hljómsveit hans U2 ætli sér að mæta á svæðið og halda uppi stemningu á þriðjudagskvöldinu. Aðstandendur hátíðarinnar hafa ekki viljað staðfesta fréttirnar en vilja benda á að mikið verður um aðrar minni þekktar hljómsveitir "sem eru sko alveg jafn góðar og þessi hel%& Bóner gaur!".

Elton John hefur gefið það út að hann mun ekki koma aftur til landsins til þess að spila eftir að fréttist út að Jón Ásgeir sé "broke". Kemur tilkynning þessi í kjölfar atburða seinustu vikna þar sem bankarnir voru hver á fætur öðrum þjóðnýttir. Segir í tilkynningu frá söngvaranum sem er einna þekktastur fyrir lög eins og Who let the dog´s out og Can I kick it?, að í ljósi liðinna atburða þá sé það ljóst að enginn á Íslandi hafi efni á því að flytja píanóið hans til landsins. Því hafi hann tekið þessa ákvörðun. Ekki náðist í Jón Ásgeir en náinn samstarfsmaður hans heldur því fram að hann sé búinn að grafa sig grenjandi ofan í holu.

Veðurofsinn er að gera landanum lífið leitt þessa dagana. Í seinustu viku þegar fyrsti snjór vetrarins lenti kom í ljós að enginn átti von á snjó þennan veturinn og var því búið að brenna vetrardekk seinustu ára. Lítið er því um að vera á dekkjaverkstæðum landsins og hafa heimildarmenn haldið því fram að ekki verði pöntuð nein vetrardekk þennan veturinn, ekki er talin ástæða til þess þar sem snjórinn sé farinn aftur og ekki von á meiri. Hinsvegar eru þeir farnir að selja regnkápur í þúsundavís.

Lag dagsins: Wannabe my lover með Spice Girls, þær munu heldur aldrei koma til Íslands til þess að spila.

Maður dagsins: Arthúr elskan sem er algjörlega að bjarga mér þessa daganna!

Pæling dagsins: Hvað eru margir sem lesa bloggið sem vita hvað error correction mode þýðir?

P.s. Að gefnu tilefni vil ég taka fram að fréttirnar hér að ofan eru á engan hátt byggðar á neinum heimildum og eru algjörlega búnar til í ímyndunarafli mínu, enda er ég geðveik ;)

Saturday, October 4, 2008

Airwaves!

Vúhú!! Airwaves er á næsta leiti og þá er bara takk fyrir ekkert að gera annað en að undirbúa það :P

Biffy Clyro mæta til landsins og verða með tónleika... Ehh, ég mæti klárlega! Ásamt Aníku babe ;* get ekki beðið eftir því að þeir mæti á klakann, shit hvað mér hlakkar til :P

Svo verða Hraunsmenn með tónleika á laugardagskvöldinu á ?Rósenberg? (gerum að minnsta kosti ráð fyrir því að þeir verði á Rósenberg). Skilst svo að Svavar sé í miklum lagasmíðum þessa dagana og megum við því vonandi búast við nýrri plötu frá þeim félögum fljótlega (*krossaputta*)

Svavar er að trúbbast á þriðjudaginn næsta, ekkert annað í stöðunni en að mæta þangað! KL.22.00 á Rósenberg, be there or be there, þú ræður! haha ;D

Þannig að á næstu tveimur vikum verður sannkölluð tónleikaveisla í lífi Sigrúnar og vil ég því benda fólki á að á næstu tveimur vikum verð ég upptekin ;)

Svo er bústaðaferð Byko fólks á næsta leiti, réttara sagt um næstu helgi!! NÆÆÆÆÆS! Það verður fjör, partí, drukkið, sungið, blaðrað og dansað og vonandi losnum við við slagsmálin sem fylgdu seinustu bústaðarferð! Ég meina, hverjar eru líkurnar á því að gelgjurnar fari í bústað með foreldrum sínum aftur á sama stað og við??

fékk 8.5 á prófinu mínu :D sweeet :D

og já, hef barasta ekkert meira að segja :P

Lag dagsins: Who´s got a match með Biffy Clyro, magnað lag :P

Maður dagsins: Jón Þór :)

Pæling dagsins: Ætli það sé einhver að lesa þetta blogg?

Friday, October 3, 2008

enn fleiri hugleiðingar

Guði sé lof að það sé kominn föstudagur! Þótt það kannski breyti ekki miklu fyrir mig þar sem ég þarf að vinna alla helgina.

Upplifði nokkuð magnað kvöld í gærkveldi, eða magnað og ekki magnað. Magnað semsagt hvernig ég eyddi því.
Upprunalega plan kvöldsins var auðvitað að læra fyrir prófið í ljós og litafræði sem ég fór síðan í í morgun. Held mér hafi nú bara gengið ágætlega, enda með kickass gátlista sem ég bjó mér til í tilefni prófsins.
En semsagt; Tónleikar í Viðey, sem mig drullulangaði til þess að fara á! Skilst að þeir hafi verið geðveikir! Var með ykkur í anda allann tímann, lofa!
Tónleikar á Rósenberg, sem mig langaði reyndar ekkert sérstaklega til þess að fara á, en það hefði nú samt verið gaman að kíkja.
Bjórkvöld á Hverfis í framhaldi af hittingi á Kaffi París með Byko liðinu. Hefði verið geðveikt gaman að fara og plana bústaðaferðina sem við leggjum upp í um næstu helgi!
Og loks lenti fyrsti snjór vetrarins uppúr kl 19.30! Damn!
Og hvað var ég að gera í gærkveldi á meðan allt þetta átti sér stað? Jú, ég var að læra undir próf.
Þið sem þekkið mig eitthvað vitið það væntanlega að fyrir tveimur árum síðan hefði ég líklegast valið eitthvað skemmtilegt að gera (þ.e.a.s. ekki lært undir prófið). Svona er þetta að vera komin aftur í skóla, ég er allt í einu orðin metnaðarfull! Weird!

Lag dagsins: Ástarsaga úr fjöllunum með Hraun. Magnað lag!

Maður dagsins: Kennarinn minn í ljós- og litafræði. Ekki nóg með það að prófið var nett skítlétt heldur stóð hann upp í miðju prófinu og gaf okkur svarið við einni spurningunni. (Prófið gildir btw 30% af lokaeinkunn!)

Pæling dagsins: Ætli Ísland sé að verða gjaldþrota?

Thursday, October 2, 2008

Einelti

Þessa dagana er ég mikið í því að velta fyrir mér fólki.
Rakst á grein um daginn í morgunblaðinu sem einnig má lesa hér:
http://www.hugo.is/einelti/sjalfsvig-larusar-(sumarid-2008).aspx

Nokkuð mögnuð grein eftir strák sem hefur lent í miklu einelti þegar hann var yngri, drengur sem samkvæmt skrifunum er jafngamall mér. Þarna er hann að lýsa eineltinu og hvernig hann náði að vinna úr því en hann er einnig að upplýsa nokkuð merkilegan sannleik þarna. Biturðin og hatrið sem fórnalambið upplifir er gífurlegt!

Meðan ég var að lesa greinina rifjaðist upp fyrir mér þær tilfinningar sem ég upplifði á tímabili, tímabili sem er helst ekki rætt nema nauðsyn krefjist. Þegar mér leið hvað verst gat ég ekki annað en velt því fyrir mér hvurslags manneskja það er sem gerir öðrum slíkt. Eftir því sem ég best veit gerði ég dömunni sem stóð helst fyrir þessu andskotakornið ekki neitt, annað en það einfaldlega að vera til. Hafði aldrei talað við hana áður, vissi ekkert hver hún var og gat bara einfaldlega ómögulega skilið hvað það var sem hún hafði á móti mér! Fyrir utan allar stelpurnar sem fylgdu henni every step of the way, að því er virtist algjörlega heilalausar og ófærar um að taka sjálfstæðar ákvarðanir.

Þegar ég las þessa grein sá ég algjörlega sjálfa mig í sporum þessa drengs. Hugsanir um það hvað ég gæti gert þessari dömu þegar ég hefði krafta til þess voru ógeðslegar svo ekki sé nú meira sagt. Hugsanir um hvað ég gæti gert sjálfri mér eftir á voru harla skárri. Í dag auðvitað skammast maður sín fyrir slíkar hugsanir en þetta er nú hinsvegar staðreynd hjá fleira fólki en maður heldur. Lengi vel hélt ég að ég væri sú eina sem hugsaði svona. Það er ekki þannig. "Einelti gerði mig næstum að fjöldamorðingja", segir strákurinn í grein sinni og vitiði hvað, ég er ekki hissa!

Einelti hefur svo gífurleg áhrif á fólk að það er hræðilegt. Sjálfsmorð og sjálfslíkamsmeiðingar hjá ungu fólki eru orðin svo algeng að maður gapir bara af undrun þegar maður sér tölurnar. En á sama tíma koma tölurnar manni ekkert á óvart.

Lausnin sem samfélagið hefur á þessum vandamálum eru heldur ekki neitt til þess að hrópa húrra fyrir, eða að minnsta kosti ekki hingað til. Lausnin á mínu vandamáli var að láta mig skipta um bekk. Eineltið hélt áfram í tvo ár eftir það og enn þann dag í dag þegar ég sé þessar stelpur fæ ég svip frá þeim, svipur sem lýsir mannvonsku og þeirri staðreynd að þær gætu byrjað aftur hvenær sem er, ekkert sem stöðvar þær.

Þegar einkunnir mínar í skóla fóru að lækka gífurlega komst fólk að þeirri niðurstöðu að ég hlyti bara að vera svona heimsk. Lausnin, senda mig til sálfræðings. Ég labbaði þaðan út ennþá bitrari og reiðari en ég fór inn. Enn þann dag í dag fyrirlít ég kennarann sem sendi mig þangað, kona sem hafði nákvæmlega engan skilning (og virtist ekki hafa áhuga á að skilja) á þeim aðstæðum sem ég hafði lent í. Skítt með klisjuna um að halda áfram og fyrirgefa fólki, ég hef engan áhuga á að fyrirgefa þessari konu, hún á það ekki skilið!

Því miður voru eineltismál og eru enn í dag algeng í skólanum sem ég gekk í. Skilst reyndar að nú sé komin upp einhversskonar áætlun til þess að koma í veg fyrir það hjá skólanum. Það hefði verið fínt að hafa slíkar áætlanir þegar ég gekk í skóla (vil taka það fram að það eru ekki nema 7 ár síðan ég útskrifaðist úr Garðaskóla).

Fór á 5 ára útskriftarafmæli fyrir tveimur árum þar sem ég neyddist til þess að horfast í augu við þetta fólk. Kveið fyrir kvöldinu í mánuð og ætlaði ekki einu sinni að fara. Skemmst er frá því að segja að ég sturtaði í mig vodka áður en ég mætti, staulaðist þarna inn og grét hálft kvöldið inná klósetti, svo illa leið mér að þurfa að tala við þetta fólk. Ég yfirgaf staðin eftir 2 tíma og sá svo sannarlega eftir því að hafa farið. Þetta er tveir tímar ævi minnar sem ég fæ aldrei, aldrei aftur!
Kannski hljóma ég bitur með þessari grein, kannski áttar fólk sig betur á því af hverju ég er eins og ég er, kannski, kannski, kannski. Mér líður að minnsta kosti betur með að tjá mig um þetta og ég veit að það eru fleiri þarna úti sem myndu taka í sama streng. Ég hvet ykkur að minnsta kosti til þess að lesa greinina, hún er nokkuð mögnuð lesning.

Lag dagsins: I´m your man í flutningi Michael Bublé.

Maður dagsins: Maðurinn sem fann upp heitavatnsofna. Mikið vona ég að hann sofi vel á nóttinni og líði vel með rafmagnsofninn sinn á meðan ég krókna úr kulda með draslið sem hann fann upp sem virkar ekki! Svaf í þykkri hettupeysu í nótt takk fyrir!

Framhald á pælingu gærdagsins: Ég er ekki geðveik, Svavar Knútur var að syngja fyrir utan stofuna mína í gær! Hann sagði mér það sjálfur.

Wednesday, October 1, 2008

hugleiðingar

Oft velti ég því fyrir mér, hvernig málin standa með ökukennslu á Íslandi. Nú keyri ég frekar mikið á höfuðborgarsvæðinu, þessa dagana keyri ég daglega inn í Reykjavík og til baka aftur út á nes og verð ég alltaf jafn hissa á ökuhæfileikum þessarar þjóðar.
Stefnuljós virðast ekki vera staðalbúnaður með bílum sem seldir eru hérna. Það er það fyrsta sem ég tek eftir á hverjum degi. Af hverju ætli það sé?
Kurteisi þekkist heldur ekki. Hugmyndin að hleypa einhverjum á undan sér er svo fjarlæg fólki á morgnana að maður skilur einfaldlega ekki hvernig umferðin gengur.
Og fólk á jeppum! Jiii, hvað fólk á jeppum hefur það gott. Ef það er einhver fyrir þeim, þá bara keyra þeir yfir mann. Ekki flóknara en það.
Það að keyra á vinstri akreininni og fara hægar en hægri akreinin og ekki hleypa framúr, það ætti að vera ástæða ökuleyfissviptingar á staðnum. Mikið vildi ég óska þess að löggan færi að skoða það mál aðeins betur í staðinn fyrir að hægja á nógu hægfara umferð á morgnana.
Svo eru það kellingarnar! Svei mér þá, með fullri virðingu fyrir kynsystrum mínum þá er bara löngu ljóst, að konur upp til hópa eru lélegir ökumenn! Þær fylgjast ekkert með því hvað þær eru að gera, eða hvað er að gerast í kringum þær, lifa algjörlega í eigin heimi og nota svo auðvitað tímann í morgunumferðinni til þess að setja á sig varagloss og maskara. Skyldi engan undra að umferðin gangi hægt fyrir sig!
Ég veit að það er tilgangslaust að svekkja sig á heimsku fólks en stundum bara verður maður að tjá sig... þannig er það nú.

Lag dagsins: var að enduruppgötva söngkonuna Gabrielle og lagið Don´t need the sun to shine (to make me smile). Fór allt í einu í gott skap við að hlusta á það, veitti ekki af því eftir fréttir vikunnar úr fjármálaheiminum. Sokkaskúffan er ágætisstaður fyrir peninginn minn, held hann fari bara þangað!

Maður dagsins: Davíð Oddson (bara að því að þetta er mitt blogg og þetta er ágætiskall)! og ef kaupin á Glitni bjarga peningunum mínum, þá er það bara frábært framtak, hvort sem hann tók þá ákvörðun eða einhver annar. Jón Ásgeir á nóg andskotans pening til þess að redda sér úr súpunni sem hann eldaði sér sjálfur!

Pæling dagsins: Var þetta í alvörunni Svavar Knútur að syngja fyrir utan stofuna hjá mér í markvissri tölvunotkun í dag? Eða er ég orðin geðveik? Nú, ég bara spyr?
(nú drullulangar mig á tónleikana útí Viðey á morgun! helvítis próf!)