Tuesday, November 25, 2008

er ekki svona löt, í alvörunni

hef bara verið brjáluð yfir ástandinu á landinu þessa daganna og hef ekki haft mig ekki í það að blogga um það!

Geðtruflaðir einstaklingar brjótast inná lögreglustöðvar og verða geðveikt hissa þegar löggan meisar þá!

Bilaðir mótmælendur kasta eggjum í Alþingi íslendinga í nafni lýðræðis og verða geðveikt hissa þegar löggan handtekur þá! Sorglegt að svona lítill hópur skemmi fyrir hinum sem styðja friðsamleg mótmæli!

Heimskir stjórnmálamenn (nefni engin nöfn en nafn eins byrjar á S og endar á teingrímur J.) standa upp á Alþingi og halda því fram að nú sé rétti tíminn til þess að ganga til kosninga og henda út ríkisstjórninni. Ekki að þvi að hann hefur einhverjar lausnir, nei, bara að því að fylgi vinstri grænna varð meira í seinustu viku heldur en það hefur verið.. Ef mér skjátlast ekki þá var það farið að lækka aftur þegar þeir settu fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina! Þannig að too bad, þú verður aldrei kosinn á þing aftur, það vill þig enginn! Og ef svo ólíklega vill til að það gerist, þá er ég flutt úr landi!

Heimskir stjórnmála menn (er enn að tala um sama manninn) ganga upp að forsætisráðherra og kýla hann í öxlina fyrir framan þingið! Heppinn er hann að Geir er það mikill klassagæji að hann þarf ekki að tala niðrandi um þetta lame excuse for a man í fjölmiðlum og benda á það að maðurinn er greinilega að fá útrás fyrir ofbeldishneigð sína og biturleika með því að ráðast á ráðherra hægri vinstri!

Biturleikinn drýpur af stjórnarandstöðunni þessa daganna vegna þess að þeir fengu ekki að vera með. Varð fyrir rosalegum vonbrigðum með Sif Friðleifs þegar ég heyrði að hún studdi tillöguna um stjórnarslit. Einu sinni var þetta mikil klassakona að mér fannst og flottur pólitíkus. Finnst það ekki lengur, því miður. Eins og ég segi, biturleikinn skín alveg í gegn og það er ekki til þess að endurreisa stöðu Framsóknarflokksins í landinu.

En jæja, svo ég drepi fólk ekki úr leiðindum, sem ég á víst til þessa daganna með pólitík þá ætla ég að tala um eitthvað annað.. Eins og til dæmis mig :P

Skólinn alveg að verða búinn, fyrsta önnin búin að ganga svona glimrandi vel og er ég bara meira en sátt með það hvernig þetta er að koma út hjá mér :) fyrir utan ástandið í fjölmiðlum þessa daganna sem verður til þess að áhugi minn á því að verða blaðamaður minnkar með hverjum deginum sem líður, að minnsta kosti ef ég ætla mér að vinna á Íslandi í framtíðinni...

Læt hér fylgja með lokaverkefnið mitt í myndvinnslu, ef ykkur finnst það eitthvað morbid þá er það bara ykkar vandamál ;)


Svo er það bara jólafrí frá og með mánudeginum næsta, var semsagt að komast að því í dag að ég er að fara í lokapróf í hljóðtækni, við sjáum til með það hvernig það á eftir að ganga upp :/

Annars bara komin í þetta fína jólaskap, farin að hlusta á jólalög og að komast í jólafílinginn.. Ætla mér að reyna að taka til í herberginu mínu eftir helgina, þar sem ég sé ekki fram á það að vera með neitt brjálæðislega mikla vinnu í desember.. á þó eftir að ræða það við yfirmennina, geri það
eftir helgi ;) svo er jólaþorpið komið upp þetta árið, ótrúlega flott og skemmtilegt í ár og svei mér þá ef þetta er ekki það flottasta til þessa :D sakna þess þó reyndar að hafa ekki ekta piparkökuhús lengur í þorpinu, það kom svo góð lykt :(

Læt fylgja með tvær myndir, bæði af hluta af þorpinu og svo af mér og mömmu uppteknar af skipulagsmálum þorpsins hérna á laugardaginn ;)

jæja, er hætt þessu í bili og farin að gera eitthvað af viti, eins og að horfa á sjónvarpið, hlusta á golden oldies tónlist eða læra.. kemur allt saman í ljós með tímanum ;)

Adios í bili
Sigrún Björg

Saturday, November 8, 2008

Magnað

Magnað hvað sjálfstæðismenn virðast ekki mega hafa skoðanir í landinu lengur. Var að lesa nokkur bloggkomment sem fylgdu frétt á mbl áðan.

Tek það fram að mér finnst það hálfkjánalegt hvernig umræðan í landinu er orðin. "Skríllinn" eins og sumir orða það (finnst það reyndar passa ágætlega), bölvar Sjálfstæðisflokknum og Seðlabankastjóra í sand og ösku fyrir að steypa landinu í glötun. Afsakið orðbragðið, en þið eruð vitleysingar sem haldið því fram að Sjálfstæðismenn og eingöngu þeir eigi alla sök á ástandinu sem blasir við okkur!

Haldiði virkilega að Sjálfstæðisflokkurinn sé einn við völd í landinu? (það eru faktískt fleiri flokkar á þingi sem hafa eitthvað um málin að segja!) Haldið þið virkilega að Davíð Oddsson sé einvaldur í Seðlabankanum? (ef mér skjátlast ekki þá eru 3 seðlabankastjórar sem stjórna batteríinu!) Haldið þið virkilega að menn eins og Jón Ásgeir og Björgólfsfeðgar séu bara blásaklausir vegfarendur sem urðu bara fyrir einelti af völdum sjálfstæðismanna í landinu? ( æji, þið vitið, mennirnir sem tóku allann peninginn YKKAR og léku sér með hann og settu þannig bankana á hausinn sem og landið allt!)

Svo fór sem fór og við verðum bara að sætta okkur við það, lítið sem við getum gert! Það er kreppa í öllum heiminum! Algjörlega tilgangslaust og út í hött að þramma niður í bæ og kasta eggjum í Alþingishúsið! Það þjónar svona álíka miklum tilgangi eins og að kasta steinum í lögguna við vörubílstjóramótmælin! Að því að það gekk svo vel, er það ekki?

Fólkið sem getur nöldrað endalaust yfir því að landsmenn fái engar upplýsingar um skilyrði alþjóða gjaldeyrissjóðsins geta kannski farið að átta sig á því að leyndin yfir þessu öllu er eitthvað sem forsvarsmenn sjóðsins settu fram sjálfir á meðan samningar eru í gangi, ekki eitthvað sem sjálfstæðismenn ákváðu upp á sitt einsdæmi (að því að þeir stjórna auðvitað öllu á bak við tjöldin eða þannig)!

Akkúrat NÚNA eru fleiri hundrað manns, hagfræðingar, lögfræðingar OG stjórnmálamenn (þar á meðal þessir "helvítis" sjálfstæðismenn sem þið eruð svo dugleg að bölva!) á fullu við það að endurreisa efnahag landsins, reyna að bjarga krónunni, ævisparnaðinum YKKAR, bönkunum, fyrirtækjum og heimilum eftir búðarleik þessara "útrásarmanna"! Þetta er auðvitað gríðarmikið verk sem þessir menn og konur standa frammi fyrir og til viðbótar við það þurfa þeir að mæta á blaðamannafund á fimm mínútna fresti og segja ykkur hvaða skilmála alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setur OG passa að verða ekki fyrir árás fljúgandi eggja þegar þeir mæta í vinnuna! Mér þætti gaman að sjá einhvern reyna að vinna þetta verk vel og þurfa svo í þokkabót að hlusta á daglegar fréttir af því að hann sé fífl, vanhæfur og að það ætti að flæma hann úr landi! (í fjölmiðlum sem virðast alls ekki vera svo hlutlausir lengur.. fjölmiðlafrumvarpið hljómar ekki svo asnalega lengur, er það? Því að hverjir eiga nú fjölmiðlana?)

Hvernig væri nú ef við tækjum okkur nú bara til, settumst aðeins niður og önduðum, leyfðum þessum mönnum að vinna vinnuna sína, til þess voru þeir nú kosnir á annað borð! og hættum þessu nöldri? Það eru ALLIR að upplifa kreppu þessa daganna nema kannski Jón Ásgeir sem virðist eiga nóg af pening til þess að kaupa sér annan fjölmiðil! Það eiga allir um sárt að binda! Það eru allir að klóra í bakkan með að borga reikninga og halda sér og sínum á floti!

Hættið þessum endalausum mótmælum sem klárlega þjóna ENGUM tilgangi og reynið frekar að aðstoða, t.d. með því að halda ykkur til hlés og leyfa þessu fólki að vinna vinnnuna sína, því að trúið mér, þeir eru að reyna það þótt þeir séu ekki í beinni útsendingu allann daginn að segja ykkur hvað þeir gerðu í hádeginu!

Skiptar skoðanir eru góðar og blessaðar og eru þær það sem halda lýðræðisríki á floti, þú þarft ekki alltaf að vera sammála mér, en stundum þarftu bara að leggja þær skoðanir til hliðar og vinna með mér, annars fer lýðræðið til fjandans. Ég er tilbúin til þess, ert þú það?

Tuesday, November 4, 2008

Everybody needs a little lovin' Around Christmas time

Það er Þriðjudagur, 4 nóvember 2008 í dag....

og það eru BARA 50 dagar til jóla takk fyrir!

Gafst upp á öllum herlegheitunum og byrjaði að hlusta á jólalög í gærkveldi.. Jóladiskur Hanson bræðra varð fyrir valinu.. Gamlar minningar brutust fram og mér leið ekkert smá vel :) Góð leið til þess að slaka aðeins á fyrir svefninn :)

Nú er þetta fyrir alvöru að byrja í skólanum, seinustu þrjár vikurnar fyrir lokaprófin og lokaverkefnin hrannast upp... Þvílíkur munur að vera orðin svona samviskusöm og sleppa við stressið við að þurfa að skila gömlum verkefnum sem "gleymdust" :P Nóg á ég með að skila þeim verkefnum sem þarf að skila þessa dagana.. Er á fullu við að vinna hin ýmsu verkefni í formfræði, nú ert þetta ekkert lengur að sitja í tímanum og föndra :P Nú þarf maður sko að vinna heima! Og teikna! Stuttmynd í VMM bíður mín, þar sem ég þarf að útbúa storyboard og upptökur hefjast svo um helgina... Er að fara að byrja á stóru verkefni í photoshop sem gildir hvorki meira né minna en 25 % af lokaeinkunn! Takk fyrir! En ég hugga mig við það að enn sem komið er hafa einkunnirnar hjá mér verið það góðar að þrátt fyrir það að ég geri ekki meir þessa önnina þá ætti ég samt sem áður að ná öllum áföngunum :P fyrir utan hljóðtækni, en ég þarf að taka lokapróf í því, sem mig grunar að ég sleppi ekki við, þrátt fyrir allar tíurnar í þeim áfanganum :/ en ég held að ég þurfi bara að ná því, semsagt fá 4,5 til þess að ná áfanganum :P

On to other news.. ehh já, sem eru öngvar :/ ég er víst engan vegin nógu dugleg við að gera hluti þessa dagana.. Nema hvað að ég skellti mér í grímubúning á laugardaginn :P var rauðhetta :P myndi henda inn mynd af mér í búningnum en ég kann það ekki.. urrr :/ jæja, þið verðið þá bara að sjá hana á Facebook ef þið hafið aðgang þar ;) sem ég held reyndar að flestir mínir lesendur hafi ;)

Annars gengur lífið bara sinn vanagang, allt að fara fjandans til í þjóðfélaginu, byko að stytta opnunartímann, ég mögulega að missa vinnuna :/ (let´s hope that won´t happen) og bíllinn minn dauður á einhverju verkstæði inní Garðabæ! Shit pirruð takk fyrir! Þannig að...

"Maður" dagsins: Jón Ásgeir, sem þrátt fyrir allar hörmungar þjóðfélagsins (sem hann á heiðurinn af) á samt nokkra MILLJARÐA til þess að kaupa sér eitt stykki fjölmiðil bara sisvona! Ágætt að Björgólfsveldið á nokkra milljarða sömuleiðis til þess að kaupa eignir Landsbankans í Englandi á brunaútsölu. Þvílíkur munur! Og ég sem hélt að greyið kallarnir væru gjaldþrota!

Lag dagsins: í tilefni af því að það eru BARA 50 dagar til jóla, þá get ég ekki setið á mér; Christmas Time af plötunni Snowed in með Hanson ;Þ

Pæling dagsins: Að hugsa sér að akkúrat núna á þessari stundu er verið að kjósa valdamesta mann í heiminum og við getum engan vegin haft áhrif á þau úrslit! Persónulega held ég með Obama, þótt að McCain sé töluvert hægrisinnaðri. Held að Bandaríkjamenn hefðu gott af því að hafa svartan forseta svona for once, geta þá dregið hausinn úr rassga##$ á sér og uppgötvað að heimurinn snýst um eitthvað meira en að vera HVÍTUR og valdamikill! Plús það að Sarah Palin fer í taugarnar á mér, veit ekki af hverju.. En það er eitthvað við þetta white supremacist dæmi allt sem fer reglulega mikið í mig.. Fyrir utan það að mér virðist McCain vera meiriháttar rasisti.. Það er kannski bara bull í mér, ég veit það ekki...

og bara svona til þess að bögga fólk aðeins þá læt ég fylgja með hluta af textanum af lagi dagsins ;) enjoy :P

We've been blessed by the children
Black, yellow, and white
They believe in things
We try to deny
So throw down your weapons
But continue the fightAnd let's love one another
On this holy night

Everybody needs a little lovin'
Around Christmas time
Somehow you got to know you're
going to be all right
Do you really remember how it used to be
Sitting under the christmas tree
In your heart you'll
Find the season
http://content.answers.com/main/content/wp/en/thumb/2/21/200px-Hanson-Snowed_In.jpg