Geðtruflaðir einstaklingar brjótast inná lögreglustöðvar og verða geðveikt hissa þegar löggan meisar þá!
Bilaðir mótmælendur kasta eggjum í Alþingi íslendinga í nafni lýðræðis og verða geðveikt hissa þegar löggan handtekur þá! Sorglegt að svona lítill hópur skemmi fyrir hinum sem styðja friðsamleg mótmæli!
Heimskir stjórnmálamenn (nefni engin nöfn en nafn eins byrjar á S og endar á teingrímur J.) standa upp á Alþingi og halda því fram að nú sé rétti tíminn til þess að ganga til kosninga og henda út ríkisstjórninni. Ekki að þvi að hann hefur einhverjar lausnir, nei, bara að því að fylgi vinstri grænna varð meira í seinustu viku heldur en það hefur verið.. Ef mér skjátlast ekki þá var það farið að lækka aftur þegar þeir settu fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina! Þannig að too bad, þú verður aldrei kosinn á þing aftur, það vill þig enginn! Og ef svo ólíklega vill til að það gerist, þá er ég flutt úr landi!
Heimskir stjórnmála menn (er enn að tala um sama manninn) ganga upp að forsætisráðherra og kýla hann í öxlina fyrir framan þingið! Heppinn er hann að Geir er það mikill klassagæji að hann þarf ekki að tala niðrandi um þetta lame excuse for a man í fjölmiðlum og benda á það að maðurinn er greinilega að fá útrás fyrir ofbeldishneigð sína og biturleika með því að ráðast á ráðherra hægri vinstri!
Biturleikinn drýpur af stjórnarandstöðunni þessa daganna vegna þess að þeir fengu ekki að vera með. Varð fyrir rosalegum vonbrigðum með Sif Friðleifs þegar ég heyrði að hún studdi tillöguna um stjórnarslit. Einu sinni var þetta mikil klassakona að mér fannst og flottur pólitíkus. Finnst það ekki lengur, því miður. Eins og ég segi, biturleikinn skín alveg í gegn og það er ekki til þess að endurreisa stöðu Framsóknarflokksins í landinu.
En jæja, svo ég drepi fólk ekki úr leiðindum, sem ég á víst til þessa daganna með pólitík þá ætla ég að tala um eitthvað annað.. Eins og til dæmis mig :P
Skólinn alveg að verða búinn, fyrsta önnin búin að ganga svona glimrandi vel og er ég bara meira en sátt með það hvernig þetta er að koma út hjá mér :) fyrir utan ás
tandið í fjölmiðlum þessa daganna sem verður til þess að áhugi minn á því að verða blaðamaður minnkar með hverjum deginum sem líður, að minnsta kosti ef ég ætla mér að vinna á Íslandi í framtíðinni...Læt hér fylgja með lokaverkefnið mitt í myndvinnslu, ef ykkur finnst það eitthvað morbid þá er það bara ykkar vandamál ;)
Svo er það bara jólafrí frá og með mánudeginum næsta, var semsagt að komast að því í dag að ég er að fara í lokapróf í hljóðtækni, við sjáum til með það hvernig það á eftir að ganga upp :/

Annars bara komin í þetta fína jólaskap, farin að hlusta á jólalög og að komast í jólafílinginn.. Ætla mér að reyna að taka til í herberginu mínu eftir helgina, þar sem ég sé ekki fram á það að vera með neitt brjálæðislega mikla vinnu í desember.. á þó eftir að ræða það við yfirmennina, geri það
eftir helgi ;) svo er jólaþorpið komið upp þetta árið, ótrúlega flott og skemmtilegt í ár og svei mér þá ef þetta er ekki það
flottasta til þessa :D sakna þess þó reyndar að hafa ekki ekta piparkökuhús lengur í þorpinu, það kom svo góð lykt :(Læt fylgja með tvær myndir, bæði af hluta af þorpinu og svo af mér og mömmu uppteknar af skipulagsmálum þorpsins hérna á laugardaginn ;)
jæja, er hætt þessu í bili og farin að gera eitthvað af viti, eins og að horfa á sjónvarpið, hlusta á golden oldies tónlist eða læra.. kemur allt saman í ljós með tímanum ;)
Adios í bili
Sigrún Björg
4 comments:
Sigrún !!!!!!!!
Geir klassagæji????????? en hvað með það jólahúsið ykkar svakalega flott love you
Kveðja Lilja
fyrir þetta? já, hann hefði getað verið með eitthvað skítkast á Steingrím, en sleppti því ;)
hmmmmm blogg? kv. hk
það fer nú alveg að líða að því held ég ;)
Post a Comment