og það eru BARA 50 dagar til jóla takk fyrir!
Gafst upp á öllum herlegheitunum og byrjaði að hlusta á jólalög í gærkveldi.. Jóladiskur Hanson bræðra varð fyrir valinu.. Gamlar minningar brutust fram og mér leið ekkert smá vel :) Góð leið til þess að slaka aðeins á fyrir svefninn :)
Nú er þetta fyrir alvöru að byrja í skólanum, seinustu þrjár vikurnar fyrir lokaprófin og lokaverkefnin hrannast upp... Þvílíkur munur að vera orðin svona samviskusöm og sleppa við stressið við að þurfa að skila gömlum verkefnum sem "gleymdust" :P Nóg á ég með að skila þeim verkefnum sem þarf að skila þessa dagana.. Er á fullu við að vinna hin ýmsu verkefni í formfræði, nú ert þetta ekkert lengur að sitja í tímanum og föndra :P Nú þarf maður sko að vinna heima! Og teikna! Stuttmynd í VMM bíður mín, þar sem ég þarf að útbúa storyboard og upptökur hefjast svo um helgina... Er að fara að byrja á stóru verkefni í photoshop sem gildir hvorki meira né minna en 25 % af lokaeinkunn! Takk fyrir! En ég hugga mig við það að enn sem komið er hafa einkunnirnar hjá mér verið það góðar að þrátt fyrir það að ég geri ekki meir þessa önnina þá ætti ég samt sem áður að ná öllum áföngunum :P fyrir utan hljóðtækni, en ég þarf að taka lokapróf í því, sem mig grunar að ég sleppi ekki við, þrátt fyrir allar tíurnar í þeim áfanganum :/ en ég held að ég þurfi bara að ná því, semsagt fá 4,5 til þess að ná áfanganum :P
On to other news.. ehh já, sem eru öngvar :/ ég er víst engan vegin nógu dugleg við að gera hluti þessa dagana.. Nema hvað að ég skellti mér í grímubúning á laugardaginn :P var rauðhetta :P myndi henda inn mynd af mér í búningnum en ég kann það ekki.. urrr :/ jæja, þið verðið þá bara að sjá hana á Facebook ef þið hafið aðgang þar ;) sem ég held reyndar að flestir mínir lesendur hafi ;)
Annars gengur lífið bara sinn vanagang, allt að fara fjandans til í þjóðfélaginu, byko að stytta opnunartímann, ég mögulega að missa vinnuna :/ (let´s hope that won´t happen) og bíllinn minn dauður á einhverju verkstæði inní Garðabæ! Shit pirruð takk fyrir! Þannig að...
"Maður" dagsins: Jón Ásgeir, sem þrátt fyrir allar hörmungar þjóðfélagsins (sem hann á heiðurinn af) á samt nokkra MILLJARÐA til þess að kaupa sér eitt stykki fjölmiðil bara sisvona! Ágætt að Björgólfsveldið á nokkra milljarða sömuleiðis til þess að kaupa eignir Landsbankans í Englandi á brunaútsölu. Þvílíkur munur! Og ég sem hélt að greyið kallarnir væru gjaldþrota!
Lag dagsins: í tilefni af því að það eru BARA 50 dagar til jóla, þá get ég ekki setið á mér; Christmas Time af plötunni Snowed in með Hanson ;Þ
Pæling dagsins: Að hugsa sér að akkúrat núna á þessari stundu er verið að kjósa valdamesta mann í heiminum og við getum engan vegin haft áhrif á þau úrslit! Persónulega held ég með Obama, þótt að McCain sé töluvert hægrisinnaðri. Held að Bandaríkjamenn hefðu gott af því að hafa svartan forseta svona for once, geta þá dregið hausinn úr rassga##$ á sér og uppgötvað að heimurinn snýst um eitthvað meira en að vera HVÍTUR og valdamikill! Plús það að Sarah Palin fer í taugarnar á mér, veit ekki af hverju.. En það er eitthvað við þetta white supremacist dæmi allt sem fer reglulega mikið í mig.. Fyrir utan það að mér virðist McCain vera meiriháttar rasisti.. Það er kannski bara bull í mér, ég veit það ekki...
og bara svona til þess að bögga fólk aðeins þá læt ég fylgja með hluta af textanum af lagi dagsins ;) enjoy :P
We've been blessed by the children
Black, yellow, and white
They believe in things
We try to deny
So throw down your weapons
But continue the fightAnd let's love one another
On this holy night
Everybody needs a little lovin'
Around Christmas time
Somehow you got to know you're
going to be all right
Do you really remember how it used to be
Sitting under the christmas tree
In your heart you'll
Find the season
No comments:
Post a Comment