Tuesday, February 3, 2009

Fréttatilkynning!

Myndin mín sem ég fékk hæstu einkunina fyrir í ljósmyndatímanum :D tekin á mótmælunum fyrir utan Þjóðleikhúsið...



Kæru lesendur, this just in:

Sigrún Björg er flutt til Kanada og ætlar þar að gerast poppstjarna líkt og átrúnaðargoð hennar, Robin Sparkles, og mun hún ekki koma til baka fyrr en Steingrími Joð hefur verið vísað úr landi fyrir kommúnistaáróður og föðurlandssvik (or something like that). Þeir sem vilja ná á henni er bent á facebook og heimasíðu þessa.

Lag dagsins: Blame it on the sun með Emíliönu Torrini.

Maður dagsins: Davíð Oddson, megi hann berjast gegn ruglinu í Steingrími og co meðan hann hefur styrk til þess!

Pæling dagsins: Af hverju er Steingrímur svona vitlaus og AF HVERJU þykist hann vita betur en aðrir? Og af hverju má ekki bara veiða helvítis hvalina?

Kv. Grumpy ol' Sigrún

Tuesday, January 20, 2009

helvítis fokking fokk!

Jæja kæru lesendur

Áttaði mig á því að ég hef víst ekki bloggað síðan í byrjun desember! Ekki nógu gott og skal ég hér með bæta úr því hið snarasta!

Semsagt, skólinn endaði og ég fékk einkunnir: ein 8, fimm 9 og ein 10! Takk fyrir, takk fyrir, rosalega stolt ;)

Desember mánuður var síðan lengi að líða, lítil sem engin vinna, skólinn búinn 1 des og ég hafði bara ekkert að gera nema hanga í tölvunni og sofa.. Ahh, hið ljúfa líf! Sem ég var reyndar fljótt búin að fá ógeð af en jæja, shit happens eins og þeir segja ;)

Jólin voru voða næs, fékk fullt af góðum bókum sem ég er svona að koma mér í gírinn að lesa, er nú þegar búin með tvær, Myrká eftir Arnald og Lífstíð eftir Lizu Marklund, frábærar bækur báðar tvær, mæli með þeim ;) svo er bara spurning hvaða bók verður fyrir valinu næst, þótt Dale Carnegie eigi líklegast vinningin í þeirri keppni...

Upplifði það í annað skiptið á ævinni að vera mömmulaus á gamlárskvöld. Foreldrarnir tóku þá ákvörðun að leggja land undir fót og skella sér til Dallas, aka Dalvík city og eyða þar áramótunum í faðmi fjölskyldunnar. Ég þurfti hinsvegar auðvitað að vinna þannig að ekki komst ég með í ferðina en heppin var ég að eiga góða að sem tóku mig að sér. Fór í mat til Hafdísar, þar sem samankomin var föngulegur hópur fólks; Hafdís, Nonni, Auður, Svava og Sigfús og síðast en ekki síst Sæunn babe sem var munaðarlaus líkt og ég þetta kvöld, þar sem foreldrar hennar ákváðu einnig að skella sér til Dalvíkur. Allavegana, frábært kvöld sem endaði síðan á Frakkastígnum eftir miðnætti. Þar var ég sótt af honum Arthúri sem fór með mig í nokkur partí hingað og þangað um bæinn og endaði loks heima hjá mér klukkan sex um morguninn, alveg dauðþreytt og engan vegin fær um eitt né neitt nema koma mér í sturtu og fara svo að sofa!

Svo byrjaði skólinn bara aftur eftir jólin, fékk fullt af skemmtilegum áföngum inní töfluna mína, ásamt nokkrum síður skemmtilegri áföngum :/ en þannig er lífið víst og ég næ að klára grunnámið í vor :D sem verður awesome! Þá er bara að útbúa portfolio líklegast og sækja um ljósmyndarann og krossa putta um að ég komist inn!

Fer líklegast til Ítalíu aftur í sumar að kíkja á hana Írisi, ætla að reyna að slá tvær flugur í einu höggi og komast til Rómar og kíkja á Elisu í leiðinni, hef ekki séð hana í fjögur ár núna í sumar! Svakalegt, finnst það engan vegin fyndið :/

Úff, sit núna bara á París, búin að vera að læra í allt kvöld, fáránlega dugleg og dáist að sæta barþjóninum í leiðinni :P og er að hugsa um að drulla mér heim.. plan? Klárlega ;)

Lag dagsins: Mad World með Gary Jules, loksins að maður kemst að því hver syngur þetta. Allavega skemmtilega fallegt lag, mæli með því.

Maður dagsins: Hörður Torfa, fyrir umburðarlyndi gegn mótmælendum sem mótmæla einhverju öðru en hann, mikið er ég fegin að hann er á staðnum til þess að hringja á lögguna þegar eitthvað er ekki honum að skapi.

Pæling dagsins: af hverju er internetið með stæla við mig?